29.04.2026 06:14

Haldið af stað til síld­ar­mæl­inga

Rannsóknarskipið Þórunn Þórðardóttir hélt í dag til stofnmælinga á norsk-íslenska síldarstofninum.

Mælingarnar standa yfir til 15. maí og er tilgangur þeirra að kanna ástand vistkerfis sjávar austur og norðaustur af landinu.

Sambærilegur leiðangur hefur verið farinn á hverju ári síðan 1996 sem þýðir að í ár er 30. afmæli leiðangranna.

Auk Þórunnar taka skip frá fjölda landa þátt í leiðangrinum en skipin koma frá Bretlandi, Færeyjum, Danmörku og Noregi.

Niðurstaðna leiðangursins er að vænta í lok sumars en þá verður sameiginleg leiðangursskýrsla kynnt fyrir Alþjóða hafrannsóknaráðinu (ICES).

                                  3045  Þórunn Þórðardóttir HF 300 Mynd þorgeir Baldursson 

 

Eldra efni

Um mig

Nafn:

Þorgeir Baldursson

Farsími:

8620479

Heimilisfang:

Reynihlið 15 D 604 Hörgárbyggð

Staðsetning:

Hörgárbyggð

Um:

Fréttaritari Morgunblaðsins til sjávar og sveita og öll Almenn Ljósmyndun sem að tengist Sjávarútvegi

Tenglar

Flettingar í dag: 2486
Gestir í dag: 7
Flettingar í gær: 5612
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 2877151
Samtals gestir: 72889
Tölur uppfærðar: 29.4.2026 14:10:19
www.mbl.is